SUMARÚTHLUTUN 2025
SÆKJA ÞARF UM Í SÍÐASTA LAGI 10. APRÍL 2025, Á OROLOFSVEF STAMOS
Ágætu félagsmenn
Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar föstudaginn 28. mars.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl.
Um vikudvöl er að ræða og hægt er að sækja um 3 valmöguleika.
Við höfum ákveðið að leigja aftur orlofshús á Stykkishólmi, frá 6. júní – 30. september.
Úthlutað verður alls 10 vikum, fyrir hvert hús og er úthlutunin slembi-úthlutun.
Verðið er kr.28.000 vikan.
Að úthlutun lokinni fær félagsfólk niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef.
Þegar greiðslufrestur er liðinn eru ógreiddar úthlutanir settar á vefinn og þá gildir reglan “fyrstur kemur, fyrstur fær”
Sumarorlofstímabilið er frá 6. júní – 15. ágúst, vikuleiga
Opnun umsókna hefst: 28. mars
Umsóknarfresti lýkur: 10. apríl
Úthlutun: 11. apríl
Greiðslufrestur til og með: 21.apríl
Til að komast inn á orlofsvefinn eru notuð rafræn skilríki.
https://orlof.stamos.is
