Aðalfundur Stamos
Aðalfundur Stamos verður haldinn þriðjudaginn 6 maí 2025 kl.17:30 í íþróttamiðstöðinni Klett, Hlíðarvelli Mosfellsbæ.
Kosið verður um 2 stöður í stjórninni, til 2 ára í senn.
Formannsstaðan er ávallt í kjöri, til 1 árs í senn.
Kjósa verður um 3 í varastjórn, til 1 árs í senn.
Endurskoðendur skulu vera tveir og einn til vara.
Meðfylgjandi er fundarboð og tillögur að breytingum á úthlutunarreglum orlofsstyrks og tillögur að hækkun Starfsmenntunarsjóðs sem bornar verða undir aðalfund.
Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram og taka þátt í að efla félagið.
Á fundinum verður boðið upp á léttar veitingar.

