Höfnum afnámi áminningarskyldu!
Í dag hófst ný herferð BSRB, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands gegn fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu á íslenskum vinnumarkaði. Afnám áminningarskyldu felur í sér eina stærstu réttindaskerðingu sem ráðist hefur verið í gagnvart opinberu starfsfólki.
Herferðin beinist að ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um afnám áminningarskyldu, en Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi þar um á Alþingi í gær. Slík aðgerð myndi draga verulega úr starfsöryggi ríkisstarfsmanna. Þá hafa sveitarfélög einnig kallað eftir sambærilegum breytingum, sem gætu haft víðtæk áhrif á starfsfólk um allt land.
Afnám áminnaraskyldu hefur í för með sér; Ógn við starfsöryggi og sjálfsögð mannréttindi, er skref afturábak og kolröng áhersla þegar opinberir vinnustaðir glíma við mikla manneklu. Með herferðinni krefst BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands þess að frumvarpið verði dregið til baka.
Hvetjum fólk til þátttöku
Við hvetjum félagsfólk til að taka þátt í herferðinni, deila efni hennar og ræða málið á vinnustöðum og á samfélagsmiðlum.
Kynntu þér málið á góðáminning.is – og sendu stjórnvöldum áminningu!
Höfnum afnámi áminningarskyldu!
