Sveitarfélag ársins 2023

Sveitarfélag ársins 2023

Niðurstaðan úr könnuninni Sveitarfélag ársins 2023 liggur fyrir, fjögur sveitarfélög voru útnefnd Sveitarfélög ársins. Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 stéttarfélaga bæjarstarfsmanna hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og þeim sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr. Borið saman við niðurstöður könnunarinnar í fyrra fengu launakjörin lakari einkunn í ár en aukin ánægja var með sveigjanleika vinnu og jafnrétti.

Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki. Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það voru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur hnepptu fyrsta sætið annað árið í röð. Sveitarfélagið Bláskógabyggð var í öðru sæti og var þetta annað árið í röð sem þau hljóta nafnbótina. Sveitarfélagið Vogar var í þriðja sæti og Skagaströnd í því fjórða.

Niðurstöður könnunarinnar hafa verið teknar saman og gefnar út í skýrslu sem er aðgengileg á heimasíðu verkefnisins https://www.sveitarfelagarsins.is/2023

Similar Posts

  • Lausar vikur í orlofshúsum í sumar

    Ágætu félagsmenn Nú er úthlutun lokið fyrir sumarorlofstímabilið 2021. Tölvupóstur hefur verið sendur á umsækjendur hvort þeir fengu úthlutun eða ekki. Alls voru 39 umsækjendur og úthlutað var 21 viku. Félagsmenn höfðu greiðslufrest til 5 maí til að ganga frá greiðslu. Orlofsvefurinn verður opnaður að nýju 7 maí, gildir þá reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“…

  • Gleðileg jól

    Við sendum félagsmönnum okkar og fjölskyldum þeirra hugheilar kveðjur um gleðilega hátíð og farsældar á komandi ári.                                                                                                                              Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða Opnunartími yfir hátíðarnar: Skrifstofan verður lokuð yfir hátíðarnar, opnum aftur 2. janúar. Jólakveðja Starfsmannafélag Mosfellsbæjar

  • Lausar vikur í orlofshúsum í sumar

    Nú er úthlutun lokið fyrir sumarorlofstímabilið 2026.Tölvupóstur hefur verið sendur á umsækjendur varðandi úthlutunina. Þau sem fengu úthlutað höfðu greiðslufrest til 17. mars til að ganga frá greiðslu. Orlofsvefurin hefur verið opnaður að nýju fyrir vikuleigu í sumar, fyrir þær vikur sem gengu ekki út í úthlutuninni. Gildir þá reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“  …

  • Sumarúthlutun 2022

    Ágætu félagsmenn Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar mánudaginn 11. apríl. Umsóknarfrestur er til 19. apríl Úthlutað verður alls 12 vikum fyrir hvort hús fyrir sig. Sumarorlofstímabilið er frá 3. júní og til 26. ágúst. Til að komast inn á orlofsvefinn er notuð rafræn skilríki eða íslykill. https://orlofshusvefur.dkvistun.is/Audkenning/IslandIs Athugið ! Við úthlutun er horft…

  • Nýr kjarasamningur

    Í dag , 20. júní hefst atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning sem Stamos ásamt tíu öðrum aðildarfélögum BSRB skrifuðu undir þann 13. júní sl. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og berst félögum í tölvupósti. Kosningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 25 júní. Kjarasamninginn er hægt að skoða á kosningarsíðunni og eru allir hvattir til að kynna sér hann…