Mannauðssjóður lokar á styrkveitingar
MANNAUÐSSJÓÐUR SAMFLOTS LOKAR Á STYRKVEITINGAR VEGNA FERÐAKOSTNAÐAR OG GISTINGAR Í NÁMS- OG KYNNISFERÐUM
Það tilkynnist hér með að stjórn Mannauðssjóðs Samflots bæjarstarfsmanna, hefur tekið ákvörðun um að loka á styrkveitingar vegna ferðakostnaðar og gistingar í náms- og kynnisferðum.
Ákvörðunin kemur til vegna bágrar fjárhagsstöðu sjóðanna í kjölfar mikillar aukningar á umsóknum í náms- og kynnisferðir.
Lokunin tekur gildi frá 24. desember 2023.
https://mannaudssjodur.samflot.is/frettir/Mannaudssjodir_loka_a_greidslu_hotels-_og_ferdakostnad/
