Kvennaverkfall 24.október 2025
STUNDIN ER RUNNIN UPP
BOÐAÐ ER TIL KVENNAVERKFALLS FÖSTUDAGINN 24. OKTÓBER 2025
Konur og kynsegin fólk er hvatt til að leggja niður launuð og ólaunuð störf eins og konur gerðu fyrst á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975. Það var sögulegur viðburður á alheimsvísu enda lögðu 90% kvenna á Íslandi niður vinnu þann dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið.
Starfsemi vinnustaða er fjölbreytt og sumstaðar þess eðlis að ekki er hægt að leggja alfarið niður störf. Eigi það við um þína stofnun hvetjum við til þess að leitað sé allra leiða til að gera konum og kvárum kleift að leggja niður störf þann 24. október n.k. til dæmis með breytingu á mönnunarskipulagi þann daginn og fá karlkyns starfsfólk til að taka að sér þjónustuna eða verkefnin.
Baráttu- og samstöðufundir verða haldnir um allt land þennan dag. Dagskráin í Reykjavík verður tvíþætt; fyrri hlutinn er söguganga um áfanga í kvennabaráttunni og sá seinni er útifundur við Arnarhól.
Nánari upplýsingar um samstöðufundi og dagskrá er að finna á kvennaar.is
Einnig er hægt að skoða viðburðinn og dagskrána á Facebook https://www.facebook.com/kvennafri
