Kosið um verkfall

Á hádegi í dag, miðvikudaginn 26. apríl, hefst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti en einnig er hægt að opna hana hér.

Samband íslenskra sveitarfélaga neitar að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Á mannamáli þýðir það að félagar STAMOS  eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa. Slík óbilgirni verður ekki liðin og því er kominn tími til frekari aðgerða.

Sameiginlegar kröfur BSRB félaga eru:

  • Jöfn laun og kjör tryggð fyrir jafnverðmæt, sömu og sambærileg störf hjá sveitarfélögunum frá 1. janúar 2023.
  • Launamismunur milli starfsfólks sveitarfélaga og starfsfólks Reykjavíkurborgar verði leiðréttur bæði hvað varðar grunnlaun og aukagreiðslur.
  • Mismunandi greiðslur til sjóða félagsins frá 2016 – 2023 verði einnig leiðréttar til jafns við aðra.

Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land. Í Mosfellsbæ munu starfsmenn leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila leggja niður störf, verði það niðurstaða atkvæðagreiðslunnar. Tímasetningar verkfalla koma fram á atkvæðaseðli.

Athugið að allt félagsfólk STAMOS  hefur  atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll  til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir. Þitt atkvæði skiptir máli.

Atkvæðagreiðslu lýkur kl 12:00 á laugardag, 29. apríl, og verða niðurstöður birtar í kjölfarið.

Sömu laun fyrir sömu störf!

Innskráning fyrir kosningu

Similar Posts

  • Tímabókanir

    Frá og með 1. október er mögulegt að óska eftir samtali eða símtali við ráðgjafa skrifstofu Stamos í gegnum hlekkinn „Tímabókun“ á forsíðu heimasíðu Stamos. Markmiðið er að bæta þjónustuna og þeir félagar sem þurfa næði til að ræða sín mál, geti óskað eftir sérstökum viðtalstíma eða símatíma sem hentar viðkomandi.

  • Mannauðssjóðurinn Hekla tekur til starfa

    Mannauðssjóður Samflots, Mannauðssjóður Kjalar og Mannauðssjóður KSG hafa sameinast undir merkjum Mannauðssjóðsins Heklu sem tók til starfa 1. janúar 2025. Sameining sjóðanna byggir á bókun 3 í kjarasamningum frá árinu 2024. Mannauðssjóðurinn Hekla hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnanna þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun starfsfólks sveitarfélaga. Hekla tekur yfir alla starfsemi eldri mannauðssjóða. Unnið er…

  • Jólin 2023

    Við sendum félagsmönnum okkar og fjölskyldum þeirra hugheilar kveðjur um Gleðilega hátíð                                   og farsældar á komandi ári.  Þökkum samstöðuna á árinu sem er að líða Jólakveðja Starfsmannafélag Mosfellsbæjar Opnunartími yfir hátíðarnar: Skrifstofan verður lokuð yfir hátíðarnar, opnum aftur 5.janúar.

  • Lausar vikur í orlofshúsum í sumar

    Ágætu félagsmenn Nú er úthlutun lokið fyrir sumarorlofstímabilið 2025. Tölvupóstur hefur verið sendur á umsækjendur varðandi úthlutunina. Félagsmenn höfðu greiðslufrest til 21. apríl til að ganga frá greiðslu. Orlofsvefurinn verður opnaður að nýju 23 apríl, gildir þá reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“  Þá er hægt að sækja um þær vikur sem ekki gengu út í…

  • Sumarúthlutun 2021

    Ágætu félagsmennOpnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar þriðjudaginn 13. apríl.Umsóknarfrestur er til 27. aprílÚthlutað verður alls 13 vikum fyrir hvort hús fyrir sig. Sumarorlofstímabilið er frá 4. júní og til 3. september.Til að komast inn á orlofsvefinn er notuð rafræn skilríki eða íslykill.https://orlofshusvefur.dkvistun.is/Audkenning/IslandIs Athugið !• Við úthlutun er horft til punktastöðu og fyrri úthlutana•…

  • Sumarúthlutun 2026

    Ágætu félagsmenn Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar þriðjudaginn 24. febrúar.Umsóknarfrestur er til og með 9. mars (lokadagur).Um vikudvöl er að ræða og tvö orlofshús eru í boði í ár.Úthlutað verður alls 10 vikum, fyrir hvert hús og er úthlutunin slembi-úthlutun. Verðið fyrir vikuna er kr. 28.000. Að úthlutun lokinni fær félagsfólk niðurstöður sendar…