Landsfundur stéttarfélaga

Ályktun Landsfundar stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga innan BSRB

Stéttarfélögin hvetja stjórnvöld til þess að horfa til félagslegs stöðugleika, ekki síður en þess efnahagslega, til að stuðla að stöðugleika í íslensku samfélagi. Nauðsynlegt er að forgangsraða í þágu uppbyggingar í velferðarkerfinu og hafna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.

Mönnun opinberrar starfsemi ríkis og sveitarfélaga þarf að haldast í hendur við þær kröfur sem gerðar eru til þeirrar opinberu þjónustu sem íbúar krefjast að veitt sé. Sveitarfélög þurfa að bjóða starfsfólki gott starfsumhverfi og fjárfesta í starfsþróun sem býr til betri starfsskilyrði og eykur starfsánægju.

Til að bæta þjónustustig sveitarfélaga, krefst Landsfundur stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga þess að löggjafinn tryggi að lagarammi í kringum fjármögun sveitarfélaga verði fullnægjandi.

Tekið af vef BSRB

Similar Posts

  • Katla félagsmannasjóður útgreiðsla

    Katla félagsmannasjóður greiddi úr sjóðnum, 3. febrúar. Breyting er á reglum sjóðsins þannig að nú er greitt út miðað við innborgun til Kötlu félagsmannasjóðs á tímabilinu 1. janúar til 31. desember árið 2024 frá vinnuveitanda. Dregin er af staðgreiðsla skatta sem er 31,49%  Sjá reglur um skattaleg skil á innri vef sjóðsins og á rsk.is Þeir sem…

  • FRAMLENGDUR UMSÓKNARFRESTUR

    FRAMLENGDUR UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 18. október Nýttu réttindi þín á styrkveitingu úr Kötlu félagsmannasjóði sem er jöfnunarsjóður sem greiðir allt að kr. 80.000 sem er hámarksfjárhæð. ALLIR félagsmenn sem voru í vinnu hjá sveitarfélaginu um lengri eða skemmri tíma á árinu 2020 eiga rétt í sjóðinn. Félagsmenn sækja um á rafrænni umsóknarsíðu sjóðsins og leggja…

  • Gleðileg jól

    Við sendum félagsmönnum okkar og fjölskyldum þeirra hugheilar kveðjur um gleðilega hátíð og farsældar á komandi ári.                                                                                                                              Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða Opnunartími yfir hátíðarnar: Skrifstofan verður lokuð yfir hátíðarnar, opnum aftur 2. janúar. Jólakveðja Starfsmannafélag Mosfellsbæjar

  • Tímabókanir

    Frá og með 1. október er mögulegt að óska eftir samtali eða símtali við ráðgjafa skrifstofu Stamos í gegnum hlekkinn „Tímabókun“ á forsíðu heimasíðu Stamos. Markmiðið er að bæta þjónustuna og þeir félagar sem þurfa næði til að ræða sín mál, geti óskað eftir sérstökum viðtalstíma eða símatíma sem hentar viðkomandi.

  • Sumarúthlutun 2024

    Ágætu félagsmenn Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar föstudaginn 5. apríl. Umsóknarfrestur er til 15. apríl Við erum spennt að kynna fyrir ykkur nýtt orlofshús á Stykkishólmi, sem við höfum ákveðið að leigja frá 7. júní – 30. september. Nánari upplýsingar um húsið er að finna á heimsíðu Stamos Úthlutað verður alls 10 vikum,…