Starfsmannafélag Mosfellsbæjar var stofnað 3. apríl 1975. Stofnfélagar voru 21.

Stofnfundinn sátu nær allir félagsmenn og formaður BSRB, Kristján Thorlasius sem óskaði félaginu góðs gengis. Fyrsti formaður félagsins var Einar Kristjánsson, húsvörður og gegndi hann því embætti í 10 ár. Aðrir í fyrstu stjórn félagsins voru G. Bjarni Guðmundsson gjaldkeri og Unnur Karlsdóttir ritari. Í varastjórn voru Þorsteinn Jónsson og Gunnhildur Hrólfsdóttir.

Stofnfélagar voru: Anna Jóna Ragnarsdóttir, Baldur Jónsson, Baldvin Skæringsson, Bjarni Bjarnason, Bjarni Guðmundsson, Dóra Diego Þorkelsdóttir, Einar Kristjánsson, Gísli Magnússon, Guðbjörg Þórðardóttir, Guðrún Indriðadóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Hreinn Þorvaldsson, Ingveldur Sveinsdóttir, Jóhann Gíslason, Jón Friðjónsson, Salome Þorkelsdóttir, Sólveig Ingibergsdóttir, Sveinn Magnússon, Unnur Karlsdóttir og Þorsteinn Jónsson.

apríl 1975 var sent bréf til hreppsnefndar Mosfellshrepps og sagt frá stofnun félagsins og markmiðum og óskað viðurkenningar á því sem samningsaðila um laun og kjör félagsmanna samkv. a og b lið annarrar greinar laga félagsins.

júlí 1975 samþykkti hreppsnefnd Mosfellshrepps félagið sem samningsaðila fastráðinna starfsmanna.

maí 1975 var sent bréf til BSRB og óskað inngöngu í samtökin.

janúar 1976 var fyrsti samningafundur með kaup- og kjaranefnd Mosfellshrepps. Í samninganefnd Starfsmannafélagsins voru Einar Kristjánsson, G. Bjarni Guðmundsson og Unnur Karlsdóttir. Í samninganefnd Mosfellshrepps voru: Gunnlaugur Jóhannsson, Sæberg Þórðarson, Haukur Níelsson og Jón Baldvinsson sveitarstjóri.

Fyrsti kjarasamningur félagsins var gerður í apríl 1976.

Nafni félagsins var breytt á aðalfundi 1978 í Starfsmannafélag Mosfellssveitar STAMOS