Mannauðssjóðurinn Hekla tekur til starfa

Mannauðssjóður Samflots, Mannauðssjóður Kjalar og Mannauðssjóður KSG hafa sameinast undir merkjum Mannauðssjóðsins Heklu sem tók til starfa 1. janúar 2025. Sameining sjóðanna byggir á bókun 3 í kjarasamningum frá árinu 2024. Mannauðssjóðurinn Hekla hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnanna þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun starfsfólks sveitarfélaga. Hekla tekur yfir alla starfsemi eldri mannauðssjóða. Unnið er að skipulagi sjóðsins sem og ráðningu framkvæmdarstjóra í samvinnu aðila þ.e. fulltrúa stéttarfélaganna og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem skipa stjórn sjóðsins.
Sjá nánar fréttir og upplýsingar af starfi Heklu hér:

Similar Posts