Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara

Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara

Ekki tókst að leysa þann hnút sem er á kjaraviðræðum BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundi samninganefnda hjá ríkissáttasemjara í morgun. Ekki hefur verið boðað til fleiri funda að svo stöddu.

Að óbreyttu hefjast verkföll í fjórum sveitarfélögum þann 15. maí svo knýja megi fram sanngjarna niðurstöðu, í Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnes og Mosfellsbæ. Þá standa atkvæðagreiðslur yfir um frekari verkföll í sex sveitarfélögum til viðbótar; í Hafnafirði, Reykjanesbæ, Árborg, Ölfus, Hveragerði og Vestmannaeyjum. Þar lýkur kosningu á hádegi á fimmtudag 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið.

Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér áður en verkföll hefjast. Félagar í BSRB um allt land standa saman og standa keik í þessari baráttu enda erum við að verja grundvallarrétt launafólks um sömu laun fyrir sömu störf!

Similar Posts

  • Sumarúthlutun 2021

    Ágætu félagsmennOpnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar þriðjudaginn 13. apríl.Umsóknarfrestur er til 27. aprílÚthlutað verður alls 13 vikum fyrir hvort hús fyrir sig. Sumarorlofstímabilið er frá 4. júní og til 3. september.Til að komast inn á orlofsvefinn er notuð rafræn skilríki eða íslykill.https://orlofshusvefur.dkvistun.is/Audkenning/IslandIs Athugið !• Við úthlutun er horft til punktastöðu og fyrri úthlutana•…

  • Aðalfundur 2024

    Ágætu félagsmenn, Aðalfundur Stamos verður haldinn þriðjudaginn 19. mars 2024 kl.17:15 á skrifstofu félagsins að Þverholti 3.Kosið verður um 2 stöður í stjórninni, til 2 ára í senn.Formannsstaðan er ávallt í kjöri, til 1 árs í senn.Kjósa verður um 3 í varastjórn, til 1 árs í senn.Endurskoðendur skulu vera tveir og einn til vara. Meðfylgjandi…

  • Fréttatilkynning

    Sameiginleg samninganefnd bæjarstarfsmannafélaga í BSRB hafa vísað kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara vegna viðræðna við Samband íslenskra sveitarfélaga. Viðræðurnar hafa staðið yfir í nokkra mánuði vegna endurnýjunar kjarasamninga sem taka til um 7000 félagsfólks í félögunum sem starfa um land allt. Samninganefndin telja fullreynt að ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara. Samhliða hefur BSRB farið…

  • SUMARÚTHLUTUN 2023

    Ágætu félagsmenn Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar föstudaginn 14. apríl. Umsóknarfrestur er til 23. apríl Úthlutað verður alls 10 vikum, fyrir hvort hús fyrir sig. Sumarorlofstímabilið er frá 9. júní og til 18. ágúst. Til að komast inn á orlofsvefinn er notuð rafræn skilríki eða íslykill. https://orlofshusvefur.dkvistun.is/Audkenning/IslandIs

  • Mótmælum á Austurvelli 10. september!

    Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauðsynjavörum og húsnæðiskostnaðar. Ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna og rannsóknir sýna að fólk ber ekki von til að ástandið lagist í bráð. Þrátt fyrir að þetta hafi verið brýnasta viðfangsefni stjórnvalda síðustu…